149. löggjafarþing — 106. fundur,  21. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[01:20]
Horfa

Gunnar Bragi Sveinsson (M) (andsvar):

Forseti. Þetta er einmitt mjög mikilvægt að hafa í huga. Þegar við erum búin að innleiða verður ekki snúið til baka. Það er nefnilega þannig að í 7. gr. EES-samningsins, held ég að það sé örugglega, er talað um samræmingu og einsleita túlkun þeirra reglna sem innleiddar hafa verið, þannig að í samningnum er í rauninni skrifað að lögin og reglurnar skuli vera með ákveðnum hætti þannig að þetta sé túlkað eins alls staðar á því svæði þar sem þetta á að gilda.

Þar af leiðandi er ekki hægt að fara fram á einhverja sértúlkun á lögum út frá einhverjum íslenskum lögum eða útgáfu af þeim fyrir evrópskum dómstólum. Ef við ætlum að gera það þurfum við undanþágu frá öllu bixinu, frá öllum pakkanum, sem er vitanlega það eina rétta.

Það sem mig langaði líka að spyrja hv. þingmann út í er hvort hann sé þá ekki í raun á þeirri skoðun að með því að innleiða þetta séum við að taka skref í að innleiða hugmyndafræðina og verkfærin og markmiðin sem felast í þriðja orkupakkanum — og þá um leið hugmyndafræðina, markmiðin og verkfærin sem þessi stofnun, ACER, hefur yfir að ráða. Jafnvel þó að ESA búi til einhvers konar millilið þarna er alveg ljóst að ACER mun hafa yfirumsjón með því hvernig ESA klárar sín mál, og það er svo sem skrifað inn ákveðið ferli til þess.

En það skref sem við erum að taka núna, er það ekki eitt skref af mörgum í þá átt að leiða okkur lengra og dýpra inn í lagabálk Evrópusambandsins og markmið um sameiginlegan orkumarkað? Það skref sem við tökum í dag mun þá færa okkur nær því að við þurfum að taka næsta skref líka, fjórða orkupakkann o.s.frv., til að geta staðið undir því sem er í 7. gr. EES-samningsins, að tryggja (Forseti hringir.) einsleitni og samræmingu.