149. löggjafarþing — 106. fundur,  21. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[01:22]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar og hugleiðingarnar. Hann talaði um samræmingu og einsleita túlkun á samningnum og reglugerðum Evrópusambandsins. Það alveg rétt og við þekkjum það úr dómum sem hafa fallið, þetta er skýrt með tilliti til þess að samræma svæðið. Við höfum orðið vör við það.

Varðandi það sem gæti gerst: Kannski gerist ekki neitt, kannski gerist einmitt ekki neitt. Mér finnst stjórnarliðarnir hafa svolítið talað á þann veginn að það muni ekkert gerast, það sé engin hætta. Það er enginn að fara að leggja sæstreng. Menn tala svolítið svona. Kannski er það bara hárrétt. Kannski gerist ekki neitt og allt verður með kyrrum kjörum um langan tíma. Það má vel vera að það sé hárrétt og að það gerist ekki neitt, kannski í fimm ár eða tíu ár.

En það sem ég var að ítreka í minni síðustu ræðu er að við erum búin að innleiða þetta og undan því verður ekki komist. Þannig að um leið og kemur ágreiningur, um leið og verður einhver árekstur, um leið og … ég hef ekki hugmyndaflug til að ímynda mér hvað gæti gerst og ætla ekkert að koma með einhver dæmi um það, en um leið og einhver býr til ágreining og fer í mál við okkur vegna þess að hann er ósáttur við okkar túlkun eða framkvæmd á þessum samningi hvað varðar orkupakkann, þá horfumst við í augu við áhættuna sem við erum að taka með því að innleiða þetta, með þessum fyrirvara sem svo er nefndur, sem er auðvitað bara mjög svo veikur og hefur ekkert gildi og mun falla um sjálfan sig um leið og reynir á.

Því textinn í regluverkinu stendur. Hvað einhverjir (Forseti hringir.) orkumálastjórar segja árið 2019 stendur bara augnablik í samanburðinum.