149. löggjafarþing — 106. fundur,  21. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[01:38]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Gunnari Braga Sveinssyni fyrir ræðuna. Hann kom í henni inn á tilhneigingu manna til að framselja alltaf meira og meira vald, fleiri og fleiri bita, til erlendra stofnana. Í umræðunni er því mikið flaggað að með framkvæmd hafi það þróast þannig að heimild til framsals valds sé í rauninni tengd því að það sé vel skilgreint og afmarkað mál sem verið er framselja vald í hverju sinni. Þykir hv. þingmanni þetta hafa ágerst undanfarin misseri (Forseti hringir.) eða erum við komin að einhverjum mörkum þannig að menn séu hættir að ganga lengra?