149. löggjafarþing — 106. fundur,  21. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[01:41]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka svarið. Telur hv. þingmaður einhverjar líkur til þess að þegar við höfum fengið þá kveðju frá Evrópusambandinu að við höfum innleitt annan orkupakkann með slíkum bravör og gengið miklu lengra en krafist var af okkur verði niðurstaðan sú að menn nýti ekki þá heimild sem er römmuð inn í 102. gr.? Telur hv. þingmaður einhverjar líkur til þess að menn nýti sér 102. gr. á síðari stigum úr því að ekki er talin ástæða til að nýta hana núna þrátt fyrir að miklar efasemdir séu uppi um málið? Það er búið að flagga — það er ekki einu sinni hægt að segja flagga — því að fyrirvarar sem menn leggja allt sitt traust á virðist haldlitlir og meira að segja hörðustu stuðningsmönnum virtist óljóst hvar þeim væri fyrir komið. (Forseti hringir.) Hver er afstaða þingmannsins til þessa?