149. löggjafarþing — 106. fundur,  21. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[01:43]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Varðandi þessar innleiðingar okkar frá EES og Evrópusambandinu er það segin saga og nokkuð gegnumgangandi að þær eru meira og minna orðaðar í boðhætti, þ.e. „Ísland skal“ eða „það ríki sem við á skal“.

Og allt sem varðar það að taka eitthvert skref til baka eða taka til endurskoðunar — það er eitthvað sem er raunverulega meira og minna á hendi EFTA, eða Eftirlitsstofnunar EFTA eða þá ACER.

Mig langar til að spyrja hv. þingmann: Telur hann að með þessari innleiðingu séum við komin á þann stað, ef vilji (Forseti hringir.) stjórnvalda stendur ekki til að spyrna hælum nú, að hann verði frekar fyrir hendi (Forseti hringir.) eftir að þetta er komið inn í íslenskan rétt?