149. löggjafarþing — 106. fundur,  21. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[01:56]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég var einmitt að velta þessu fyrir mér. Það hefur flogið fyrir í umræðunni að það kynni að vera hætta á því að til málaferla kæmi sem reist yrðu á þeim samningi sem við erum að undirgangast. Og ég fór að velta því fyrir mér hvaða rök í slíkum málaferlum svona „sameiginlegur skilningur“ hefði, þ.e. hvort þarna væri eitthvert hald, hvort þarna væri eitthvað sem hægt væri að byggja á, hvort þarna væri einhver vörn í hugsanlegri málsókn gegn okkur.

Þannig að mig langar til að spyrja þingmanninn aftur hvort hann kannist að svona sameiginlegur skilningur, svokallaður, sé nýttur sem hluti af einhverju lögformlegu samkomulagi milli tveggja aðila, hvort sem það eru tvö lönd eða, eins og í þessu tilfelli, land og bandalag landa. Hvort hann telji að þetta hafi í sjálfu sér (Forseti hringir.) einhverja þýðingu.