ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Þegar ég lauk máli mínu hér fyrr í kvöld í fyrstu ræðu minni þurfti ég að eiga orðastað við hv. þm. Hjálmar Boga Hafliðason, Framsóknarmann, sem hingað kom í mýflugumynd og varpaði fram nokkrum spurningum en hvarf síðan á braut. Ég var hins vegar búinn að lofast til þess að ég skyldi útskýra í nokkrum orðum það sem hann hafði hér fram að færa, sem var aðallega það að árið 2015 var samþykkt á þinginu breyting á raforkulögum með tilvísun í 22. gr. þess orkupakka sem við fjöllum nú um.
Þessi 22. gr. var í sjálfu sér fylgifiskur annars orkupakkans þar sem gert er ráð fyrir skiptingunni í framleiðslu og dreifingu. Þess vegna var talið æskilegt fyrir Ísland að við myndum setja upp þessa kerfisáætlun til að skipuleggja mætti betur raforkudreifingu um landið. Eins og fram hefur komið er ekki vanþörf á því. Og þar sem hv. þingmaður spurði mig hvað hefði breyst að mínu áliti og að minni skoðun frá því þá, og ég lofaði honum svari í þessari ræðu, get ég sagt það í tveimur orðum: Ekki neitt.
Það hefur ekki neitt breyst í afstöðu minni eða okkar Miðflokksmanna í þessu efni. Við tókum einfaldlega upp þessa 22. gr. árið 2015 til að koma á kerfisáætlun sem var talin nauðsynleg til að byggja upp kerfi innan lands í dreifingu.
Í þessari umræðu hefur verið reynt að segja að þeir sem nú skipa þingflokk Miðflokksins, og voru áður í öðrum flokki, eða þriðja, hafi skipt rækilega um skoðun í málinu og hafi reynt að innleiða þennan orkupakka á sínum tíma og hlaupi nú frá því eins og hundar frá spýju. Þetta er náttúrlega alrangt. Eins og ég segi hefur ekkert breyst í okkar afstöðu, ekki á nokkurn hátt. Við tókum þetta bara inn og síðan var því lokið.
En nóg um þetta. Það er hins vegar rannsóknarefni, og hefði kannski verið ágætt fyrir þennan ágæta þingmann Framsóknarflokksins að skýra út fyrir okkur hinum — og ég tala nú ekki um öllum kjósendum, eða þeim kjósendum sem flokkurinn á eftir — hvað olli því að þingflokkur Framsóknarflokksins er hlaupinn frá flokksþingsáætlun um að ekki ætti að afhenda útlendingum yfirráð yfir okkar orku. Þar hefur þingflokkur flokksins gjörsamlega snúist við, tekið 180° beygju. Það má segja svipað um þingflokk Sjálfstæðisflokksins en sá þingflokkur hefur hlaupið frá landsþingssamþykkt sem var í sjálfu sér á sama veg.
Hvað þýðir þetta? Þetta þýðir að hvar sem maður fer þá hittir maður fólk sem hefur áður kosið þessa flokka sem segir: Aldrei meir. Ef þetta verður samþykkt erum ég og Sjálfstæðisflokkurinn eða ég og Framsóknarflokkurinn, eftir því við hvern þú talar, skilin að skiptum. Auðvitað er það mjög sorglegt að þessir þingflokkar, báðir tveir, virðast ekki heyra neitt sem gerist hér fyrir utan húsið. Og eins og ég sagði í kvöld að þótt ekki hafi verið margir hér fyrir utan í dag og ekkert rosalega margir á laugardaginn eru þetta samt fulltrúar fólks sem yfirleitt mætir ekki til mótmæla. Þetta er þögull meiri hluti sem lætur ýmislegt yfir sig ganga en er nú nóg boðið. Þetta fólk er líka mikið á samfélagsmiðlum. Það eru jú komnar 14.000–15.000 undirskriftir frá Orkunni okkar o.s.frv. Auðvitað er þetta fólk að láta í sér heyra, að sjálfsögðu. Auðvitað treystir þetta fólk á að flokkarnir sem það kaus haldi haus í þessu máli. En því miður lítur ekki út fyrir að svo sé.
Mikið hefur verið talað um álit lögfræðinga, aðallega tveggja. En mig langar aðeins til að drepa á álit ágæts lögfræðings sem heitir Eyjólfur Ármannsson og er lögfræðingur hjá LLM. Í mjög góðri grein í Morgunblaðinu segir hann t.d., með leyfi hæstv. forseta:
„Þá verði jafnframt tekið enn frekar og sérstaklega til skoðunar á vettvangi Alþingis hvort innleiðing hennar“ — þ.e. ESB-gerðarinnar — „við þær aðstæður samræmist íslenskri stjórnarskrá.“
Hann segir að þessi klausa sé rýr en athyglisverð þar sem hún feli í sér óvissu. Hann segir hér, með leyfi forseta:
„Sjá má að lagafyrirvarinn felur í sér vafasama lögfræðilega loftfimleika og óvissuferð gagnvart eftirfylgni við EES-samninginn en fyrirvarinn á að setja skorður við að með innleiðingu gerðarinnar geti Ísland orðið hluti innri orkumarkaðarins. Gerðin felur í sér framsal á fullveldi og stjórnskipuleg álitaefni og á Alþingi að krefjast nánari upplýsinga um innleiðinguna.“
Það er akkúrat það sem við höfum verið að reyna að gera hér alla þessa klukkutíma. En Eyjólfur heldur áfram, með leyfi forseta:
„Reglugerð um raforkuviðskipti yfir landamæri er ekki sögð hafa þýðingu hér á landi.“
Hann segir hins vegar síðar í greininni að höfnun á þriðja orkupakkanum muni ekki setja aðild Íslands að EES-samningnum í uppnám. Með leyfi forseta:
„Alþingi ber að hafna þingsályktunartillögunni og tilkynna það sameiginlegu EES-nefndinni. Slík málsmeðferð ógnar ekki aðild að EES-samningnum enda í fullu samræmi við ákvæði hans.“
Akkúrat það sem við höfum verið að halda fram alla þessa umræðu. Eyjólfur heldur áfram, með leyfi forseta:
„Ótti við slíkt er hættulegur samstarfinu. Stór hluti þriðja orkupakkans hefur ekki gildi fyrir Íslandi líkt og orkumálastjóri ESB og utanríkisráðherra hafa lýst yfir og mikilvægt er að það komi fram í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar.“
Enn einn punkturinn sem við höfum farið fram á, Miðflokksmenn og Flokkur fólksins, að EES-nefndin sjálf gefi út slíka yfirlýsingu.
„Nefndin færi varla að komast að öðrum skilningi enda sitja þar undirmenn ráðherrans og orkumálastjórans; sendiherrar Íslands, Noregs og Liechtenstein EFTA-megin og fulltrúi framkvæmdastjórnar ESB. Þetta yrði í fyrsta sinn í 25 ára sögu EES-samningsins sem hinn stjórnskipulegi fyrirvari væri nýttur og máli vísað aftur til nefndarinnar, enda í fyrsta sinn sem ætlunin er að færa helstu náttúruauðlind Íslands undir erlent eftirlit og regluverk innri raforkumarkaðar ESB sem landið er ekki hluti af.“
Ég segi, frú forseti: Getur þetta verið skýrara? Ég held ekki. Er hægt að orða þetta þannig að ekki sé hægt að skilja það? Ég er ekki þeirrar skoðunar. Þetta álit þessa ágæta lögmanns byggir að mínu mati nákvæmlega undir þau rök sem við höfum haft uppi í þessari umræðu frá byrjun, að nauðsynlegt sé að láta reyna á allan samninginn.
Eins og hann segir: Ótti við að reyna á það er hættulegur samstarfinu sem slíku.
Maður hlýtur að spyrja: Ef 102. gr. væri ekki þarna, ef hún væri ónauðsynleg, væri hún ekki hluti þessa samnings. Það er gert ráð fyrir því að þetta gerist, að ríki komi til baka til sameiginlegu nefndarinnar með álitamál, fari í sáttaferli, fái niðurstöðu þar sem fyrirvarinn kemur frá sameiginlegu nefndinni en ekki einhliða fyrirvari héðan sem er ekki túkallsvirði eins og við erum búin að sjá í hráa ófrosna kjötsmálinu.
Þetta, frú forseti, er kjarninn í þeim málflutningi sem við Miðflokksfólk og Flokkur fólksins höfum haldið uppi hér allan tímann. Það er ánægjulegt þegar menn af þessu kalíberi, virtir lögmenn, styðja í einu og öllu málflutning sem við höfum haldið fram allan tímann.