ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Já, ég hef nú fylgst með þjóðmálaumræðu og stjórnmálum í nokkurn tíma, þó að ég sé blautur á bak við eyrun hvað það varðar að standa hér. En þetta er þekkt tækni við að koma málum í gegn. Mín tilfinning er sú að þetta sé kannski ekki notað í mikilsverðum málum heldur frekar í málum sem eru — hvað eigum við að segja? — ríkjandi stjórnarflokkum mikilsverð en væri mögulega hægt að leiðrétta á seinni stigum. En þetta er þannig mál að ekki er hægt að leiðrétta það á seinni stigum vegna þess að þarna skuldbindum við þjóðina að þjóðarétti. Við breytum því ekki eftirleiðis hér inni á Alþingi.
Telur þingmaður að það séu mörg dæmi þess að þessi aðferðafræði hafi verið viðhöfð við mál sem mætti jafna við það sem hér er til umræðu?