ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni fyrir ræðuna. Það er einmitt dálítið á þessum nótum sem maður upplifir andrúmsloftið, sérstaklega í stuðningsmannahópum stjórnarflokkanna sem tala fyrir þessu máli. Það kemur auðvitað ekkert sérstaklega á óvart að stuðningsmenn þeirra flokka sem aðhyllast Evrópusambandsaðild séu áfram um þetta mál en það hefur komið virkilega á óvart hversu ákveðið þingflokkar Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks snerust í þessu máli og settu sig fremsta í flokk stuðningsmanna þessarar innleiðingar.
Hv. þm. Þorsteinn Sæmundsson kom inn á það í ræðu sinni að hann upplifði það sem svo að stuðningsmenn þessara flokka tjáðu sig á þeim nótum að það stappaði nærri því að menn upplifðu svik flokka sinna við sig.
Ég velti fyrir mér verklaginu við vinnslu málsins. Nú hafa menn verið í hægagangi með þetta mánuðum og misserum saman. Hæstv. utanríkisráðherra, ef ég man rétt, lýsti því yfir að hann sæi ekki ástæðu til annars en að líta til þess að koma fram með málið á haustþingi, á hausti komanda. Mikill asi er í kringum nefndarstarf og nefndina og síðan á að keyra þetta mál í gegn hér í þingsal á eins skömmum tíma og hægt er og helst í skjóli nætur, eins og stundum er sagt, þó að við tölum um málið þegar okkur er úthlutað tíma, eins og gengur.
Heldurðu að eitthvert verklag orsaki þá tilfinningu margra stuðningsmanna stjórnarflokkanna að menn hafi vikið af þeirri braut sem ætlast var til að þeir héldu sig á?