149. löggjafarþing — 106. fundur,  21. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[02:38]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Þór Þorvaldssyni andsvarið. Til að byrja á spurningunni sjálfri og svara henni held ég að það sé svo sem of seint að stíga þéttingsfast á bremsuna þegar bíllinn er komin út í skurð. Allt verklag stuðningsmanna innleiðingar þriðja orkupakkans er því marki brennt að það eigi að setja hausinn undir sig, keyra málið í gegn og klára og sjá síðan dálítið til hvernig verkast vill.

Til að setja í samhengi 20 ára tímann sem Viðar Garðarsson talar um í pistli sínum: Það kom fram hjá hv. þingmanni fyrr í kvöld, sem var ágætisupprifjun, að á undanförnum tíu árum hefur kostnaður við orkuöflun, sem sagt vindmyllur og orkuöflun með því að beisla vind, farið niður um 50%.

Við horfum fram á tímabil örrar þróunar á næstu áratugum, rétt eins og undanfarna áratugi. Þau rök t.d. að þetta sé svo dýrt eða orkutapið sé svo mikið og að þetta sé tæknilega flókið — eflaust mun þróunin leysa þau vandamál að stærstum hluta til. Þannig að það að stinga hér í samband verður miklu einfaldari ákvörðun að taka eftir 10 eða 20 ár en er í dag, hvað þá fyrir fimm eða tíu árum síðan. Og ég held að við verðum, ef ekki vill betur til, að þvinga okkur í þá stöðu að spyrja: Og hvað svo? Horfa dálítið fram í tímann og reyna að átta okkur á hvernig við viljum að þessi orkumarkaðsmál (Forseti hringir.) þróist næstu árin og áratugina.