149. löggjafarþing — 106. fundur,  21. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[03:03]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni gott andsvar og mjög réttmætar hugleiðingar. Á sama tíma og stjórnvöld leggja ríka áherslu á loftslagsmálin og orkuskiptin, og þar á meðal á rafbílavæðinguna svokölluðu, sem hefur gerst hraðar en menn áttu von á, er vandséð hvernig þetta á að samrýmast því að við undirgöngumst samevrópskan raforkumarkað. Talað er um 2030 í þessum orkuskiptum hér eins og hv. þingmaður nefndi, og það er alveg klárt í mínum huga að við verðum komin langleiðina með sæstreng árið 2030. Þá verður samkeppni orðin um þessa orku. Þess vegna held ég að það muni einmitt setja okkar eigin orkuskiptum stólinn fyrir dyrnar þegar menn sjá að orkufyrirtæki geta selt raforkuna á margfalt hærra verði til Evrópu en hér heima, vegna þess að þetta er hrein orka sem Evrópa þarf sannarlega á að halda.

Ég held að það sé vanhugsað hvaða áhrif þessi orkupakki getur haft á okkar eigin orkuskipti og skuldbindingar í þeim efnum, sem eru miklar samkvæmt Parísarsamkomulaginu. Þarna bendir hv. þingmaður réttilega á mjög mikilvægt mál sem hefur ekkert verið rætt og ætti svo sannarlega heima í þessari umræðu. Ég tek undir það með hv. þingmanni og þakka honum fyrir að vekja máls á þessu.