149. löggjafarþing — 106. fundur,  21. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[03:05]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Svo vill til að það er nokkur fjöldi fólks sem fylgist með þessari umræðu og hefur sent okkur spurningar. Ég fékk eina spurningu hér áðan sem er mjög áhugaverð og mér datt í hug að deila henni með hv. þingmanni. Hún er nokkurn veginn á þessa leið: Hvaða afleiðingar telur þingmaðurinn að samþykkt orkupakkans kunni að hafa á þá kjósendur sem var minnst á áðan, þeirra flokka sem þeir telja að hafi brugðist sér? Telur þingmaðurinn t.d. að upp kunni að koma áberandi andstaða við EES-samninginn í heild, eða með öðrum orðum að EES-samstarfinu kunni að vera ógnað með þessum hætti vegna þess að orkupakkinn er keyrður í gegnum þingið á þeim hraða og með þeim hætti sem nú hefur verið gert?

Mig langar að heyra álit hv. þingmanns á þessu.