ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni. Það er ánægjulegt að það eru margir sem sitja heima og fylgjast með þessari umræðu þó að klukkan sé orðin rúmlega þrjú. Það sýnir bara hversu mikilvægt málefnið er og almenningur hefur margar réttmætar spurningar sem hann hefur ekki fengið neitt tækifæri til að koma á framfæri, sem sýnir bara hvað málið er illa kynnt af hálfu ríkisstjórnarinnar.
Það er spurt um tvennt. Það er spurt um áhrif á kjósendur og áhrif á EES-samninginn. Varðandi kjósendurna er í mínum huga alveg klárt að þetta er eitt af því sem varðar traust almennings til stjórnmálamanna og Alþingis. Við sjáum t.d. Vinstri græna sem börðust gegn orkupakka eitt og tvö á sínum tíma og voru eini flokkurinn sem var á móti, að núna skuli þeir bara reyna að keyra (Forseti hringir.) þetta í gegn á sem stystum tíma.(Forseti hringir.) Þetta segir allt sem segja þarf. Ég fæ að koma síðar inn á seinni spurninguna.