149. löggjafarþing — 106. fundur,  21. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[03:10]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og tek heils hugar undir það sem hann sagði, það er óneitanlega mjög sérkennilegt að við skulum samþykkja möglunarlaust að þau sérkjör sem giltu hér til fjölmargra einstaklinga og fyrirtækja í landinu þegar orkupakki eitt kom til afgreiðslu skyldu falla niður, vegna þess að það er einhver hugmyndafræði í Evrópu. Við erum vissulega aðilar að EES-samningnum, sameiginlega markaðssvæðinu, en það eru líka undanþágur þar vegna sérstöðu. Það er nákvæmlega það sem við áttum að gera, fara fram á sérstakar undanþágur. Það er hægt að rökstyðja mjög vel að slíkar undanþágur ættu að fá tiltölulega greiða afgreiðslu af hálfu Evrópusambandsins vegna þess að við erum ekki tengd því svæði.

En það er alveg ljóst í mínum huga að stjórnmálamenn hafa ekki staðið í lappirnar og gera það ekki enn þá, ríkisstjórnarflokkarnir, því miður. Við sjáum fullyrðingar stjórnmálamanna, eins og ég nefndi áðan, fyrrverandi iðnaðarráðherra, um að raforka myndi ekkert hækka. Það stóðst ekki neitt. Það bara stóðst ekki neitt. Raforkan hækkaði, sérkjör voru afnumin og þess vegna segi ég: Er ekki afar hæpið að þær fullyrðingar sem stjórnvöld, ríkisstjórnin, setur fram núna um að þetta hafi engin áhrif o.s.frv., að við setjum einhvern fyrirvara — fer þetta ekki á nákvæmlega sama veg og fyrri yfirlýsingar (Forseti hringir.) stjórnmálamanna í þeim efnum sem hafa ekkert staðist? Ég held að það sé nokkuð ljóst, herra forseti.