149. löggjafarþing — 106. fundur,  21. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[03:14]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég er alveg á því, eins og ég rakti áðan, að ég tel afar hæpið að þessar fullyrðingar komi til með að standast núna. Þær stóðust ekki þegar við vorum að innleiða orkupakka eitt og tvö. Því miður virðast stjórnmálamenn ekki átta sig nægilega á því að það er ábyrgðarhlutur að segja að þetta komi ekki til með að hafa nein áhrif þegar við sjáum að það hefur gerst oftar en einu sinni að menn hafa sett fram fullyrðingar í tengslum við innleiðingu orkupakkanna hér á undan sem hafa ekki staðist. Í mínum huga er þetta dæmi um það sem er allt of algengt í stjórnmálum á Íslandi, að menn setja eitthvað fram sem stenst ekki og virðist vera ábyrgðarlaust. Síðan (Forseti hringir.) kemur orkan til með að hækka og (Forseti hringir.) þá koma allir af fjöllum og eru ákaflega hissa.