149. löggjafarþing — 106. fundur,  21. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[03:15]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni fyrir ræðuna. Hún vakti hjá mér vangaveltur í tengslum við það sem hv. þingmaður kom inn á, að menn hafi ekki staðið vaktina með þeim hætti sem ætlast er til af stjórnmálamönnum og embættismannakerfinu, ef svo má segja, í þessum efnum og að hagsmunagæslunni hafi verið ábótavant á fyrri stigum málsins. Ég skildi hv. þingmann þannig að hann væri að horfa allt aftur til innleiðingar fyrsta og annars orkupakkans. Ég held að þessi tilfinning hv. þingmanns sé hárrétt og þetta sé hluti af þeirri vantrú sem er alltumlykjandi í tengslum við yfirvofandi innleiðingu þessa þriðja orkupakka. Almenningur í landinu hefur ekki fengið neinar sérstakar skýringar á því af hverju svona mikið liggi við. Það er ekkert sem bendir til þess að við séum í einhverju tímahraki með málið. Höfum í huga að hæstv. utanríkisráðherra var búinn að ýja að því að málið yrði ekki á dagskrá fyrr en á haustþinginu næsta. Það setur í rauninni þetta óðagot og það offors sem málið er núna keyrt áfram af í mjög sérstakt samhengi og ýtir undir vantraust sem lúrir yfir málinu.

Mig langar til að spyrja hv. þingmann hvort hann telji líklegt, ef menn treysta sér ekki til að ganga ákveðnar fram í hagsmunagæslunni fyrir innlenda aðila og einstaklinga og fyrirtæki en raunin virðist núna, að menn gyrði sig í brók og taki (Forseti hringir.) til varna í hagsmunagæslunni, innleiðingu (Forseti hringir.) síðari pakka, hversu margir sem þeir kunna að verða.