149. löggjafarþing — 106. fundur,  21. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[03:35]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M):

Hæstv. forseti. Það hefur verið komið inn á það áður í nótt og í gærkvöldi í stuttu máli að viðsnúningur stjórnarflokkanna sé athyglisverður. Það er engin almennileg umræða sem við andstæðingar orkupakkans höfum náð við fylgismenn hans. Þeir virðast hlaupa frá málinu í trausti þess að Miðflokkurinn verði flautaður út af vellinum og að hægt verði í framhaldinu að samþykkja þingsályktunartillöguna án þess að leita sátta um málið við þá sem eru andvígir þeirri leið sem valin hefur verið og án þess að gera þetta í sátt við þing og þjóð.

Það má ljóst vera að stjórnarflokkarnir sem hafa forgöngu um málið, njóta reyndar stuðnings Evrópusambandssinna, hafa fundið fyrir mikilli andstöðu við málið í þeirra baklandi. Það er ekkert skrýtið þar sem stjórnarflokkarnir hafa lýst því yfir áður á Alþingi og á öðrum vettvangi að þeir séu andsnúnir þessari ráðagerð. Það mun hafa verið ein ástæða þess að flokkarnir nutu þess kjörfylgis sem þeir nutu og raun var á í síðustu kosningum. Viðsnúningurinn er alger. Eftir áralanga stefnufestu flestra þessara flokka er snúið af leið. Mig langar til að lesa hér upp úr nefndaráliti frá 125. löggjafarþingi, með leyfi forseta:

„Ísland hefur í þriðja lagi mikla sérstöðu hvað varðar landfræðilegar aðstæður. Hér býr mjög fámenn þjóð í mjög stóru en orkuríku landi. Ef litið er til meginmarkmiða tilskipunar Evrópusambandsins um innri markað fyrir raforku kemur í ljós að a.m.k. tvö af fjórum eiga alls ekki við á Íslandi, þ.e. að gera raforkugeirann að hluta að innri markaði Evrópusambandsins. Það markmið fellur um sjálft sig hvað Ísland snertir því að raforkumarkaðurinn hér er einangruð heild og ekki tengdur markaði annarra landa Evrópska efnahagssvæðisins. Sama gildir um fjórða markmiðið, að auðvelda fyrirtækjum í raforkugeiranum að eiga viðskipti milli landa á EES-svæðinu. Slíkt er ekki inni í myndinni í tilviki Íslands þar sem raforkumarkaðurinn er einangraður og verður væntanlega áfram um alllangt skeið. Því vakna spurningar um hvað vakti fyrir mönnum að leita ekki eftir því frá upphafi, sem augljós rök mæltu með, að Ísland fengi varanlega undanþágu frá því að falla undir þessa tilskipun. Sú leið var valin þegar Ísland af næsta augljósum ástæðum fékk undanþágu frá tilskipun um gagnsæi verðlagningar og gegnumflutning á jarðgasi á Evrópska efnahagssvæðinu. Frá byrjun hefði átt að leita eftir sambærilegri varanlegri undanþágu fyrir Ísland á innri markaði með raforku.“

Síðar í álitinu segir, með leyfi forseta, í niðurstöðunni:

„Minni hlutinn telur með öllu ótímabært að ákveða nú, með því að Alþingi heimili að falla frá stjórnskipulegum fyrirvara í tengslum við ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 168/99, að tilskipun Evrópubandalagsins um innri markað fyrir raforku verði felld inn í EES- samninginn. Það voru hrein og klár mistök“ — hrein og klár mistök, herra forseti — „að leita ekki eftir varanlegri undanþágu fyrir Íslands hönd. Með vísan til þess sem að framan greinir leggur minni hlutinn til að ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 168/99 verði vísað til ríkisstjórnarinnar og henni falið að taka málið upp á nýjan leik á vettvangi sameiginlegu nefndarinnar. Leita ber þar eftir ótímabundinni undanþágu fyrir Ísland frá því að gerast aðili að innri markaði Evrópska efnahagssvæðisins með raforku. Standi sú tilhögun svo lengi sem íslenski raforkumarkaðurinn er einangraður og ótengdur við raforkumarkað annarra EES-landa. Til vara verði gerð sú krafa af Íslands hálfu að Íslendingum gefist mun lengri aðlögunartími að þessum breytingum, að lágmarki tólf til fimmtán ár.“

Þetta er ritað 2. maí árið 2000 og flutningsmaður er hæstv. forseti Alþingis, Steingrímur J. Sigfússon.

Þetta nefndarálit væri í raun, með breytingum á gerðinni, í fullu gildi í dag. Og ég verð að segja það, herra forseti, að á þessum tímapunkti virtust menn mjög einarðir í afstöðu sinni. Hvað hefur breyst? Af hverju ættum við ekki að leita til sameiginlegu EES-nefndarinnar og fá varanlegar undanþágur en ekki að innleiða með þeim hætti sem hér er farið fram á?