ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Jú, það er einmitt þetta sem maður veltir fyrir sér, hvað veldur því að það þarf að keyra þetta mál svo hratt í gegnum þingið. Maður veltir því fyrir sér, ekki síst vegna þess að stuðningsmenn ríkisstjórnarflokkanna hafa í hverri könnuninni af annarri verið í meiri hluta andvígir þessu máli. En það er eitthvað sem er yfirsterkara í hugum þeirra sem skipa þingflokka þessara sömu flokka. Það er eitthvert afl sem er sterkara en raddir fólksins sem kaus þá og veitti þeim umboð sitt í síðustu kosningum.
Við getum í sjálfu sér velt því fyrir okkur og okkar á milli hvað það geti verið og eins og hv. þingmaður kom inn á hvaða hagsmunir það eru sem eru svo stórkostlegir að það þurfi að keyra þetta mál í ágreiningi, ekki bara innan þings, það er það minnsta, heldur líka í ágreiningi við þjóðina í gegnum þingið. Kjósendur geta ekki áfrýjað því sem hér er búið að gerast. Þetta mun væntanlega hafa í för með sér að Sjálfstæðisflokkurinn verður 15% flokkur og Framsóknarflokkurinn nær þurrkast út, það eru skammtímaáhrifin, sem eru í sjálfu sér ekkert óæskileg að okkar dómi. En auðvitað er það miklu mikilvægara að þjóðin verði ekki fyrir tjóni af þeirri ráðstöfun sem hér er verið að keyra í gegn. Þess vegna er varað við henni.
Mig langar samt sem áður að spyrja hv. þingmann hvort hann geti gert sér grein fyrir því hvaða hagsmunir það eru sem eru ríkari en skylda þingmannanna (Forseti hringir.) við þá sem kusu þá.