149. löggjafarþing — 106. fundur,  21. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[03:56]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Traust á alþingismönnum og Alþingi — það skyldi þó aldrei vera að það væru einhverjar ástæður fyrir því að það eykst ekki. Það var, ef ég man rétt, í óundirbúnum fyrirspurnum í gær sem hv. þm. Helgi Hrafn Gunnarsson átti orðastað við hæstv. forsætisráðherra um akkúrat þetta, traust og virðingu Alþingis, og kom svolítið inn á hvað gæti valdið því að það ykist ekki. Ef ég fer rétt með talaði hæstv. forsætisráðherra um að búið væri að auka gagnsæi gríðarlega mikið frá því að hún settist á þing en það ekki borið árangur. Annað sem hefði verið velt upp væri að það væri mikið atriði að fá nýtt fólk á þing. Frá því að hún hefði tekið sæti á Alþingi hefði verið mikil endurnýjun á fólki á þingi en allt komið fyrir ekki, enn væri bullandi vantraust á þingið.

Maður hlýtur að setja þetta í samhengi. Hvað breyttist? Flokkarnir eru enn þá hér, einhverjir nýir en aðrir eldri, sumir mjög gamlir. Ef framgangan er þessi, að þrátt fyrir að gagnsæið sé aukið og skipt sé um fólk á stólum séu mikilsverð loforð, grundvallaratriði í stefnu flokkanna svikin, endurtekið og ítrekað á þann hátt sem við verðum vitni að, er þá nema von að fólk spyrji sig að því hvort Alþingi sé treystandi?

Ég held að það sé alveg hárrétt sem (Forseti hringir.) hv. þingmaður kom inn á um hræðsluáróðurinn um að EES-samningurinn (Forseti hringir.) sé í hættu. Það er algjör fjarstæða. Hann verður ekki í hættu (Forseti hringir.) fyrr en við hættum að umgangast hann á þann hátt (Forseti hringir.) sem við höfum skrifað undir að gera.