ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Það er í sjálfu sér ánægjulegt að hafa fengið það staðfest frá hæstv. forseta þingsins að fundur muni standa þangað til þessari umræðu hér er lokið. Auðvitað er okkur ekkert að vanbúnaði að sinna því og uppfylla það.
Við vorum að velta því fyrir okkur hér áðan hvað hefði fengið menn til að taka algjöra U-beygju í þessu máli — gildir þá einu hvort um er að ræða núverandi hæstv. forseta þingsins, hv. þm. Steingrím J. Sigfússon, eða aðra. Það var sagt hér áðan að menn könnuðust ekki við Vinstri græna sem sama flokk og áður. Við sem erum hér inni og erum ekki innstu koppar í búri þess flokks erum ekkert einir um að skilja þetta ekki. Á laugardaginn var fundur á Austurvelli þar sem fyrrverandi hv. þm. Ögmundur Jónasson var meðal ræðumanna og flutti sköruglega ræðu. Hann kallaði sinn gamla flokk Hreyfinguna – framboð, vegna þess að hann sagði að hún væri hvorki vinstri né græn orðin, og héti því Hreyfingin – framboð. Það kann vel að vera að breitt verði yfir nafn og númer og þessu verði breytt í tímans rás. En það er fjarri því að Vinstri grænir séu einir um að koma manni á óvart í afstöðu til þessa máls. Það kemur líka verulega á óvart hvernig Sjálfstæðisflokkurinn hefur hlaupið frá landsfundarályktunum sínum um þetta mál.
Þessir ágætu flokkar hafa verið í allra kvikindi líki, ef við getum orðað það þannig. Sjálfstæðisflokkurinn hefur gengist undir það að hafna algerlega markaðsvæðingu í heilbrigðismálum og biðlistar af sjúku fólki út um allt hlaðast upp. Þetta lætur Sjálfstæðisflokkurinn yfir sig ganga. Því veltir maður því fyrir sér hvort þessir flokkar hafi bara skipst á áherslueiningum sínum. Í staðinn fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn láti undan í heilbrigðismálum slaki Vinstri grænir á hvað varðar markaðsvæðingu á raforku án þess að hugsa t.d. til þess hvaða áhrif slík markaðsvæðing hefur á náttúru þessa lands. Nefni ég nú enn á ný öll þau leyfi sem sótt hefur verið um og jafnvel afgreidd um smávirkjanir svokallaðar á Íslandi, sem eru undir 10 MW, og þurfa þess vegna ekki að fara í umhverfismat. Ég gæti líka minnst á þá vindmyllugarða sem menn hafa nú áætlað eða er verið að rannsaka, þeir yrðu væntanlega þrír eða fjórir. Það heyrðist ekki tíst í Hreyfingunni – framboði. Ekki tíst. Þeir eru hvorki vinstri né grænir í þessum efnum á þessum tíma.
Síðan er ein spurning í viðbót: Þeir sem eru andstæðingar okkar í þessu máli hafa sífellt verið að tala um að við séum alltaf að tala um sæstreng. Ég man ekki eftir að hafa nefnt sæstreng í þessari umræðu nema í framhjáhlaupi. Maður spyr sig hins vegar: Nú er næsta víst hvað varðar þessa vindmyllugarða sem ég minntist á áðan, og allar þær smávirkjanir sem menn ætla að setja upp, að það mun ekki verða hægt fyrir þá sem reisa þessi mannvirki að selja raforku á því verði sem hún er almennt seld á á Íslandi um þessar mundir. Þá kemur bara tvennt til, þ.e. ef menn ætla ekki að reka þessi apparöt með tapi: Annaðhvort munu þeir sem eru að ráðast í þessar framkvæmdir hækka orkuverð til almennings á Íslandi verulega ellegar að þeir hafa undir höndum fullvissu um að þeir geti selt raforkuna þangað sem viðunandi verð fæst fyrir hana. Þetta er allt saman mjög athyglisvert og mun örugglega koma aftur upp í þessari umræðu.