ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Þorsteini Sæmundssyni fyrir ræðuna. Mér þótti liggja í orðum hv. þingmanns að hann hefði efasemdir um markmið þeirra sem nú horfa til umtalsverðrar uppbyggingar, bæði í formi vindmyllugarða og síðan smávirkjana, sem eru samt drjúgar eins og þær koma fyrir, þessar innan við 10 MW virkjanir.
Til að það sé sagt þá er ég síður en svo á móti frekari orkuvinnslu hér á landi. En mér finnst liggja í orðum þingmannsins að hann hafi efasemdir um að eina markmið þeirra aðila sem standa fyrir þessari væntanlegu uppbyggingu sé að selja inn á innanlandsmarkaðinn. Plan A sé kannski það sem er aðeins fjarlægara en þó innan seilingar væntanlega miðað við þá innleiðingu sem nú er verið að reyna að keyra í gegn hér í þinginu.
Skil ég hv. þingmann rétt? Sé þetta raunin, hvaða áhrif heldur hv. þingmaður að það hafi á vilja fólksins í landinu til að styðja við verkefni sem þessi, vindmyllugarða annars vegar og smávirkjanir svokallaðar hins vegar? Heldur hann að það hafi jákvæð eða neikvæð áhrif, ef þetta er raunin?
Í seinna andsvari mínu kem ég inn á flutningsnetin sem eru hluti af þessu en mér vinnst ekki tími til þess núna. Ég byrja sem sagt á því sem ég hef nefnt hér.