ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og tek svo sannarlega undir hans lokaorð hér við fyrirspurn minni: Lærum af reynslunni. Það er vel mælt, hv. þingmaður, og á svo sannarlega við í þessu stóra máli. En því miður virðist ríkisstjórnin ekkert hafa lært af reynslunni. Vinstri grænir, sem eru í forsæti þessarar ríkisstjórnar, ættu nú að þekkja söguna vel.
Eins og hv. þingmaður nefndi hér réttilega var hæstv. forseti og þáverandi þingmaður, Steingrímur J. Sigfússon, mjög á móti þessum orkupakka eitt og tvö og færði fyrir því gild rök. Hæstv. forseti er mælskur mjög og hefur flutt margar góðar ræður, en ég held að hann hafi flutt eina sína bestu ræðu þegar hann talaði gegn orkupakka eitt og tvö.
Ég verð að segja að það undrar mig að hv. þingmaður og hæstv. forseti skuli ekki hafa miðlað þessu til sinna félaga í Vinstri grænum varðandi þetta mál, að við skyldum læra af reynslunni. Eins og hv. þm. Þorsteinn Sæmundsson nefndi hér hafði hann og þeir sem mæltu gegn þessu algjörlega rétt fyrir sér. Raforkuverð hækkaði og þarna var búið að markaðsvæða raforkukerfið á Íslandi, sem engin þörf var fyrir og hefur gefið slæma raun þar sem það hefur verið gert og innleitt.
Í því ljósi kemur mér verulega á óvart afstaða Vinstri grænna í þessu máli. Þeir hefðu svo sannarlega getað lært af reynslunni og farið hina lögformlegu leið, eins og hæstv. forseti talaði fyrir á sínum tíma, að fá varanlegu undanþágu, sem skiptir verulegu máli og er eina lögformlega og rétta leiðin í málinu.