ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Ég sagði í síðustu ræðu minni að ég sæi fram á að í næstu ræðum ætlaði ég að fara yfir hvernig maður sæi orkumarkaðsmálefni þróast, bæði til skamms og lengri tíma. Það efni sem ég vil koma inn á í ræðu núna þykir mér rétt að setja fram á þessum tímapunkti, bara til að setja í samhengi það umhverfi sem við erum að stíga frekari skref í með innleiðingu þriðja orkupakkans, sem er regluverk Evrópusambandsins til viðbótar við þá pakka sem þegar hafa verið innleiddir. Í því samhengi langar mig að segja við þingheim að sporin hræða. Ég held að ástæðan fyrir því að margir hafi efasemdir um innleiðingu þriðja orkupakkans sé ásælni Evrópusambandsins í sífellt meiri samruna, á hvaða sviði sem það er. Það virðist alltaf seilst lengra og lengra og enginn veit almennilega hvar samrunaþróunin mun enda. En við vitum auðvitað að ýmsir bera þá von í brjósti að Evrópa verði einhvers slags bandaríki Evrópu, rétt eins og bandaríki Ameríku eru til undir stjórn Trump þessi misserin.
Þeir sem þekkja myntumræðuna vita að flestir sem tjá sig um hina sameiginlegu mynt eru þeirrar skoðunar að hún geti vart lifað nema til komi enn meiri samruni, a.m.k. samruni á sviði fjármála Evrópusambandsríkjanna. Það er inn í þá mynd sem við verðum að horfa og tala þegar við tjáum okkur um þetta mál. Ég held að þetta sé alla vega drjúgur hluti þeirra efasemda sem almenningur hefur um málið, enda þekkjum við þær efasemdir sem meginþorri landsmanna hefur um mögulega inngöngu í Evrópusambandið.
Í því samhengi, aftur, finnum við okkur á þeim stað að maður verður að spyrja sig: Hvernig líður þingflokki Vinstri grænna eða stuðningsmönnum Vinstri grænna með þetta mál þegar við horfum á það að þingflokkur Vinstri grænna var heill og óskiptur á móti orkupakka eitt og orkupakka tvö og flutti hæstv. núverandi forseti Alþingis prýðisgóðar ræður þá sem hv. þingmaður þar sem hann lýsti efasemdum sínum um innleiðingu fyrsta og annars orkupakkans? Hvernig líður þingflokki Vinstri grænna með það að þurfa að setja hausinn undir sig núna og keyra þetta mál í gegnum þingið?
Sama má segja með þingflokk Framsóknarflokksins, sem hefur tekið U-beygju frá því bara fyrir nokkrum vikum eða mánuðum síðan, og stuðningsmenn þeirra. Og síðan eru það ágætir vinir mínir í þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Það getur ekki verið góð staða þar.
Allt í umhverfi og umgjörð þessa máls vekur upp tortryggni. Ég ítreka það sem ég hef sagt áður, að hæstv. utanríkisráðherra hafi lýst því yfir að hann sæi fyrir sér að málið færi ekki inn í þingið fyrr en í haust gerir þetta enn tortryggilegra allt saman, að málið sé rekið áfram með því offorsi sem raunin er þegar menn virðast meta það sem svo að illu sé best aflokið.
Það kemur auðvitað engum á óvart samfylkingarflokkarnir þrír, sem eru áhugasamir um inngöngu Íslands í Evrópusambandið, séu áfram um innleiðingu þriðja orkupakkans. En það kemur verulega á óvart að ríkisstjórnarflokkarnir þrír sé á þeim stað sem þeir eru á núna. Þegar maður hefur í huga að sporin hræða sannarlega hvað varðar samskipti við Evrópusambandið og sífellt meiri ásælni þeirra í aukinn samruna og yfirráð yfir hinum ýmsu sviðum mannlífsins og efnahagslífsins þá er (Forseti hringir.) við því að búast að óróa setji að fólki.