149. löggjafarþing — 106. fundur,  21. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[04:28]
Horfa

Jón Þór Þorvaldsson (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni kærlega fyrir ræðuna, góð eins og von var til. Hann gerði að umtalsefni þá stöðu sem er í stjórnmálunum og varðar þetta mál. Það vill svo til að ég er þannig í sveit settur, kem úr landsbyggðarkjördæmi, þar sem hefur verið nokkuð breitt fylgi við hina ýmsu stjórnmálaflokka, þ.e. þetta er ekki blátt kjördæmi eða grænt kjördæmi eins og kannski oft hefur verið talað um í stjórnmálum, heldur hafa vinstri flokkar, miðjuflokkar og hægri flokkur eins og Sjálfstæðisflokkurinn átt þar nokkuet fylgi um mjög langt skeið. Og vegna þessa þá þekki ég ansi mikið af fólki, góða vini og fjölskylduvini, sem styðja hinar ýmsu stefnur í stjórnmálum.

Ég verð að segja það og taka undir með hv. þingmanni að ég skynja það á þessu fólki, þótt það sé kannski ósammála mér í stjórnmálum eða í stjórnmálaskoðunum, að allir virðast vera sammála um að hér sé verið að gera mistök við innleiðingu orkupakka þrjú. Það á við um fylgjendur Vinstri grænna og Framsóknar og Sjálfstæðismenn hafa allir samsinnt mér í þessu. Hins vegar kemur ekkert á óvart með Viðreisn, sem er nýr flokkur, að þeir séu fylgjandi málinu, það er yfirlýstur Evrópusambandsflokkur. Það kemur heldur ekki á óvart með Samfylkinguna, sem er líka yfirlýstur Evrópusambandsflokkur. Ég geri mér ekki alveg grein fyrir hvar Píratar hafa staðið í fortíðinni, en í dag eru þeir alla vega fylgjandi þessu máli og eru (Forseti hringir.) þó á móti sæstreng.

Mig langar til að varpa því til hv. þingmanns hvernig hann (Forseti hringir.) líti á það, eins og í tilfelli Pírata, að þeir geti verið fylgjandi málinu en á móti sæstreng.