ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Þetta er áhugaverð vangavelta hjá hv. þm. Jóni Þór Þorvaldssyni. Ég held að það sem komið hefur fram síðan síðari umr. hófst í síðustu viku, þótt stuðningsmenn þingsályktunartillögunnar hafi verið tregir til að taka þátt í umræðunni, nýjar upplýsingar, bendi allt til þess að að innleiðingu aflokinni verði staðan bara nákvæmlega sú sem reglugerð 713 og 714 segir til um, enda segja hér ótal margir, Píratarnir held ég allir þar á meðal, að það þurfi enga fyrirvara, þeir séu óþarfir. Þetta er bara eins og þetta er. Þannig að ég er efins með (Forseti hringir.) Pírata, ég man ekki eftir nema einum hv. þm. Helga Hrafni Gunnarssyni, að hann hafi tjáð sig á þessum nótum, (Forseti hringir.) má vera að þeir séu fleiri. En ég held að þessi skoðun þeirra risti ekki djúpt.