149. löggjafarþing — 106. fundur,  21. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[04:38]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni fyrir andsvarið. Stutta svarið er: Jú, ég held að menn séu að gera mikið úr meintum réttindabótum neytenda við innleiðingu þriðja orkupakkans. Það hefur verið sagt í allmörgum ræðum, í ótrúlega háu hlutfalli af þeim ræðum sem stuðningsmenn innleiðingarinnar hafa haldið, að nú verði mikil bót á hvað neytendavernd varðar. Ég veit ekki betur en að það sé lítið vandamál að skipta um raforkusala í dag. Sú breyting varð á fyrri stigum og ég held að þeim fjölgi ekkert möguleikunum þó að þriðji orkupakkinn verði innleiddur.

Ég verð að viðurkenna að ég held að menn séu að mikla mjög þessa meintu neytendavernd. Þegar spurt hefur verið út í í hverju breytingarnar felist á tímalínunni frá innleiðingu fram að lagningu sæstrengs þá hefur þetta verið hent á lofti, fyrst og fremst neytendavernd og gegnsæi. Ég veit ekki hvað það er sem menn eru að vísa í þarna. Það er nú bara eins og það er, að aðgengi að því að velja sér raforkusala er til staðar í dag og engin breyting að verða þar á við þessa innleiðingu.