ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni fyrir svarið. Eins og ég sagði í fyrra andsvar mínu er stundum reynt að yfirfæra regluverk sem passar fyrir stærri samfélög, og samfélög sem eru öðruvísi í sveit sett en Ísland er, þar sem landamæri landa liggja t.d. saman sem mun nú seint gerast hjá okkur Íslendingum. Hverjar telur hv. þingmaður ástæður þess að við Íslendingar virðumst svo gjarnir á að vilja innleiða hluti með þeim hætti að regluverk milljónaþjóða sé innleitt hjá okkar litlu þjóð?