ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Nú reikar hugur minn og sérstaklega eftir ræðu hv. þm. Birgis Þórarinssonar. Til umræðu hefur verið hvaða hagsmunir liggi til grundvallar því að keyra svo þétt á orkupakka þrjú með þeim aðferðum sem við höfum rætt. Nýlega, nánar tiltekið 17. maí sl., birtist grein eftir Hildi Sif Thorarensen í vefmiðlinum Viljanum. Höfundur er verkfræðingur og hefur kynnt sér raforkumál að nokkru gagni. Hún veltir fyrir sér framtíðarhorfum í orkumálum á Íslandi og hvata til fjárfestingar, eins og hv. þm. Birgir Þórarinsson kom inn á áðan, í geiranum á eyju sem nú þegar framleiðir næga orku, og reyndar umframorku, en eyjan er sem stendur ekki tengd raforkukerfi annarra landa og því trauðla hægt að sjá hverjum ætti að selja enn meiri orku en nú er framleidd án breytinga á núverandi tengingum við raforkukerfi annarra landa eða markað.
Mig langar til að lesa úr þessari grein, með leyfi forseta:
„Inni á vefsíðu Landsvirkjunar er margar áhugaverðar upplýsingar að finna, m.a. þær að á Íslandi eru árlega 1,9 TWst af umframorku, umframorku sem Landsvirkjun hefur velt fyrir sér að selja frá sér í gegnum sæstreng. Þetta magn jafngildir um 10% af þeirri orku sem er framleidd af Landsvirkjun á ári og er því töluvert.
Það sem kemur á óvart í þessu samhengi er að undanfarna mánuði hefur hver fréttin á fætur annarri birst um aðila sem hafa áhuga á að virkja á Íslandi. Má þar meðal annars nefna fyrirtækið Zephyr sem hefur áhuga á að setja upp vindmyllur á Íslandi og er í eigu norskra sveitarfélaga og fylkja. Hægt er að ætla að slík fyrirtæki stundi ekki mikil áhættuviðskipti og því er rétt að velta fyrir sér hvers vegna áhugi er fyrir vindmyllum og vindmyllugörðum í landi þar sem nóg er til af orku og engin leið er til að flytja hana úr landi þar sem ekki er kominn sæstrengur.
Það eru þó ekki einvörðungu Norðmennirnir sem hafa sýnt áhuga á því að virkja á Íslandi, en fyrirtækið Arctic Hydro hefur samkvæmt vefnum hjá Orkustofnun sex rannsóknarleyfi fyrir vatnsaflsvirkjunum. Í frétt frá RÚV kemur fram að fyrirtækið sé að hluta til í eigu Benedikts Einarssonar, náfrænda Bjarna Benediktssonar, og Eyþórs Arnalds, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Aftur er eðlilegt að velta fyrir sér hvers vegna þessi mikli áhugi sé fyrir hendi á að virkja í landi þar sem ekki skortir orku.
Íslensk orkumiðlun, fyrirtæki sem stofnað var af Bjarna Ármannssyni, gerði samning um raforkuviðskipti með 65 gígavött í byrjun þessa árs samkvæmt frétt af mbl.is. Það eru því fleiri fjárfestar sem hafa sýnt orkuviðskiptum áhuga á Íslandi og svo virðist vera sem áhuginn sé heldur að aukast en dala þessi misserin.
Á Íslandi eru starfræktar sjö jarðvarmavirkjanir, en ef litið er inn á vefsíðu Orkustofnunar eru 34 leyfi í gildi fyrir slíkum virkjunum. Það er því alveg ljóst að virkjunum er að fjölga á Íslandi, stórum sem og smáum og virðist sem áhugi og framkvæmdir séu ekki í samræmi við orkuþörf í landinu, sbr. þá 10% umframorku sem nefnd var í upphafi greinarinnar.
Að lokum má ekki gleyma Heiðari Guðjónssyni, íslenskum hagfræðingi, fjárfesti og nýráðnum forstjóra fjarskipta- og fjölmiðlafélagsins Sýnar. Heiðar er enginn nýgræðingur á fjármálamarkaðnum, en hann á hlut í HS Veitum sem og SSB Orku sem hugðist reisa virkjun í Svartá.
Það er því alveg ljóst að erlendir sem og innlendir fjárfestar hafa áhuga á að setja fé sitt í virkjanir og félög um virkjanir á Íslandi, þótt ómögulegt sé að átta sig á ástæðunni fyrir þessum áhuga. Eitt er víst, skynsamir fjárfestar sem þessir setja ekki stórar upphæðir í taprekstur.“
Hæstv. forseti. Getur verið að nokkurt sannleikskorn sé að finna í niðurlagi höfundar, að ofangreindir aðilar, fjárfestar, hyggi ekki á taprekstur né fjárfesti í ólíklegum tækifærum til arðsemi fjárfestinga? Erum við þarna kannski komin að þessum punkti og búin að finna enn einn hvatann til að innleiða téða gerð? Eru kannski fleiri hvatar en hræðsla við að setja EES-samninginn í uppnám, hvað svo sem felst í því?
Það var áhugavert að hlusta á hv. þm. Birgi Þórarinssyni áðan í ræðu þar sem hann fór yfir fréttir sem, ef ég kemst næst, hafa birst inni á Energy World, um Danmörku og Noreg og Frakkland, þar sem vogunarsjóðir eru að kaupa upp dreifikerfi í almannaeigu, eða eins og í Noregi þar sem uppbygging vindorkugarða er fjármögnuð af þýskum fjárfestum og í Frakklandi um kröfurnar og uppskiptingu og einkavæðingu vatnsorkuvirkjana frá því í mars síðastliðnum. Ég held að öll rök hnígi að því að alveg ljóst sé að verið er að markaðsvæða raforkuna og hana á að selja til Evrópu, hvort sem menn trúa því eða ekki (Forseti hringir.) að hér séu allir fyrirvarar í lagi.