149. löggjafarþing — 107. fundur,  21. maí 2019.

varamaður tekur sæti.

[13:30]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að Guðlaugur Þór Þórðarson verði fjarverandi á næstunni í opinberum erindum. Í dag, þriðjudaginn 21. maí, tekur því sæti á Alþingi sem varamaður fyrir hann 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykv. n., Albert Guðmundsson. Hann hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju.