149. löggjafarþing — 107. fundur,  21. maí 2019.

störf þingsins.

[14:00]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. 350 börn eru á biðlista hjá Þroska- og hegðunarstöðinni, sem býður upp á greiningu á röskun í þroska og hegðun, líkt og ADHD og einhverfu. Biðtíminn er a.m.k. ár og ástandið hefur verið óbreytt síðustu þrjú árin, segir í frétt RÚV í gær. Í frétt um sama mál á RÚV 8. maí sl., eða fyrir 12 dögum, voru 330 börn á biðlista hjá Þroska- og hegðunarstöðinni, allt að 12 mánaða biðtími eftir þjónustunni. Börn sem þurfa að bíða lengur eftir greiningu eru í meiri hættu á að þróa með sér ýmiss konar vandamál. Það þýðir að það fjölgar á biðlistunum um næstum tvö börn á dag, 20 börn á 12 dögum.

Árið 2016 var bent á þennan vanda í skýrslu Ríkisendurskoðunar en það skilaði engu. Ekkert aukið fjármagn til að sinna þörfinni, geta greint eða sinnt fleiri börnum, hvað þá að útrýma biðlistum. Nei, það bætast bara fleiri börn á biðlista hjá Þroska- og hegðunarstöðinni. Um 15–20% barna þurfa sennilega á einhverjum tíma á þjónustu að halda, það eru 12.000–16.000 börn. Löng bið getur haft mjög slæmar afleiðingar. Við bið eykst t.d. vandi barna sem eru með ADHD og einhverfu og þróast e.t.v. út í depurð, kvíða og vanlíðan. Að vera á biðlista er óbærilegt ef barnið fær ekki viðeigandi þjónustu.

Það á ekki að láta börnin bíða, aldrei. Börn þroskast hratt og að láta þau bíða í ár eða lengur er fáránlegt og okkur hér til háborinnar skammar. Um 30% tilvísana á stöðina koma frá landsbyggðinni þar sem þjónustan hefur dregist saman og hætt var að sinna börnum í heimabyggð þeirra. Og kostnaðurinn. Neita foreldrar sér um að fara með börnin í þessa greiningu vegna kostnaðar? 350 börn á biðlista, fáránlegt. Eitt barn á biðlista er allt of mikið, slíkt á ekki að fyrirfinnast.