um fundarstjórn.
Það er alveg sjálfsagt mál að verða við ósk þingmannsins og ég þakka honum fyrir að gefa forseta tækifæri á því að tjá sig aðeins um þetta mál. Þannig er að undir liðnum störf þingsins er sérstaklega gert ráð fyrir því að þingmenn geti átt orðaskipti við annan þingmann. Þeir geti beint spurningu eða snúið máli sínu að öðrum þingmanni, formanni þingnefndar eða þess vegna óbreyttum þingmanni. Þá eru það mannasiðir að láta viðkomandi þingmann vita og er hann þá settur á mælendaskrá næstur á eftir þeim sem á orðastað við hann.
Þetta gerði hv. þm. Björn Leví Gunnarsson ekki. Hann notaði dagskrárliðinn störf þingsins til að fara mjög ósæmilegum orðum um annan hv. þingmann. Í 93. gr. þingskapa segir að ef þingmaður talar óvirðulega um forseta Íslands eða ber þingið eða ráðherra eða einhvern þingmann brigslyrðum eða víkur með öllu frá umræðuefninu þá getur forseti gripið til þeirra ráða sem þar er nánar fjallað um.
Það kaus forseti að gera ekki að þessu sinni og bregðast mildilegar við en það er rétt hjá hv. þm. Birgi Ármannssyni að það stappaði mjög nærri að í þessu tilviki ætti að beita þessari grein.