um fundarstjórn.
Forseti. Ég þakka forseta fyrir að útskýra alla vega hvers vegna hann lét þessi orð falla, að hann taldi þessa notkun dagskrárliðarins ekki við hæfi. En samkvæmt reglum í þingsköpum varðandi þennan dagskrárlið, störf þingsins, þá kemur fram, með leyfi forseta:
„Í allt að hálftíma á fyrir fram ákveðnum þingfundum, að jafnaði tvisvar í hverri heilli starfsviku, sbr. 2. mgr. 10. gr., geta þingmenn kvatt sér hljóðs um störf þingsins, gefið yfirlýsingu eða beint spurningum til formanna nefnda, formanna þingflokka eða annarra þingmanna.“
Því tel ég furðulegt að nálgast þetta á þann máta að þetta hafi ekki verið við hæfi fyrir dagskrárliðinn, því að hv. þm. Björn Leví Gunnarsson var þarna með yfirlýsingu og var einnig að ræða um störf þingsins. Ég get ekki séð að það hafi neitt verið að því.