ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Það er fagnaðarefni að taka aftur til við að ræða þetta mikilsverða mál sem skiptir okkur öll miklu og mun skipta framtíðarkynslóðir á Íslandi enn meira máli. Í þeirri umræðu sem hér fór fram í gær og fram undir morgun dýpkaði umræðan verulega. Þá leituðu menn ástæðna þess að ríkisstjórnarflokkarnir hafa nýlega kúvent stefnu sinni í þessu máli. Við fórum í sjálfu sér ágætlega yfir það mál í gær og mig langar aðeins að höggva í þann knérunn. Eins og fram kom í upphafi umræðunnar í gær var ég fjarri góðu gamni þegar hér fór fram góð umræða í síðustu viku um þetta mál. Þess vegna greip ég upp það sem ég vildi kalla gullkorn úr umræðunni, sem hér var í síðustu viku.
Ég staldraði við ræðu hv. þm. Silju Daggar Gunnarsdóttur úr Framsóknarflokki. Hún fór ágætlega yfir það hvers vegna flokkur hennar hefur snúist í marga hringi í þessu máli og hefur numið staðar að sinni. Við vitum ekki hvort það dugar fram yfir atkvæðagreiðsluna. Hún lokaði máli sínu með þessum orðum, með leyfi forseta:
„Niðurstaða mín er sú að við höfum búið þannig um hnútana í þessu máli að fyrirvarar muni örugglega halda. Við erum í raun ekki bara komin með belti og axlabönd eins og við í Framsóknarflokknum höfum lagt mikla áherslu á frá upphafi, heldur erum við komin með, ja, hvað skal segja, álímdan hártopp, smekkbuxur og nýja skó.“
Nú er það þannig að sá sem hér stendur vitnar ekki í Björgvin Halldórsson á hverjum degi en Bó hafði skoðun á svona ummælum. Þau eru, með leyfi forseta: „Ný föt, sama röddin.“
Það er hins vegar afskaplega skemmtileg tilhugsun, þessi lýsing á flokknum. Ég vona sannarlega að þeir ágætu menn sem hafa það verkefni sér til lífsviðurværis að teikna myndir sem lýsa stjórnmálaástandinu á Íslandi sjái sér fært að teikna mynd af Framsóknarflokknum í smekkbuxum með álímdan hártopp og í nýjum skóm. Ég held að það væri gott innlegg í baráttuna.
Herra forseti. Í gær var vitnað til orða Eyjólfs Ármannssonar sem er lögmaður. Hann hefur goldið varhuga við því að þriðji orkupakkinn verði samþykktur. Hann segir í nýlegri grein í Morgunblaðinu, með leyfi forseta:
„Alþingi ætlar samtímis að samþykkja þriðja orkupakkann og skuldbinda Ísland að þjóðarétti til að innleiða í landsrétt áfanga í orkustefnu ESB og að setja málsgrein inn í „stefnu stjórnvalda um uppbyggingu flutningskerfis raforku“ sem gengur gegn orkustefnu ESB. Ekki er bæði samtímis hægt að innleiða áfanga í orkustefnu ESB og ákveða stefnu sem gengur gegn henni.“
Svo mörg voru þau orð, herra forseti. Ég held að það sé óráð að hlusta ekki á menn sem hafa þessa þekkingu og reynslu. Hér hafa líka verið taldir fram aðrir lögmenn og spekingar sem hafa í sjálfu sér talað á líkan veg og Eyjólfur Ármannsson lögmaður. Ég held að við verðum við afgreiðslu þessa máls einfaldlega að taka okkur tíma, annaðhvort að fresta málinu þannig að hægt sé að fara yfir þessar ábendingar og aðrar, ellegar að semja okkur að því að nauðsynlegir fyrirvarar, sem ekki hafa verið settir nú, verði settir með almennilegum hætti (Forseti hringir.) að undangenginni umfjöllun hjá sameiginlegu EES-nefndinni.