ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég fagna því mjög að hv. þingmaður skuli stíga á stokk og við getum haldið áfram þeim viðræðum sem við áttum í gær.
Mig langar til að vekja athygli hv. þingmanns á greinargerð, dagsettri 19. mars 2019. Þetta er greinargerð eftir þá góðu fræðimenn, Stefán Má Stefánsson og Friðrik Árna Friðriksson Hirst. Undir kaflanum Stjórnskipuleg álitaefni vegna framsals á ríkisvaldi til ESA, á bls. 25, segir svo, með leyfi forseta:
„Eins og áður greinir varða flestar reglurnar, sem fela í sér valdframsal til ESA, aðgang að grunnvirkjum yfir landamæri og rekstraröryggi þeirra. Slíkum grunnvirkjum, t.d. sæstreng, hefur ekki verið komið á fót hér á landi. Það breytir því þó ekki að þriðji orkupakkinn verður ekki tekinn upp í íslenskan landsrétt nú nema hann standist stjórnarskrána. Verður ákvörðun Alþingis um hvort aflétta eigi stjómskipulegum fyrirvara Íslands við þriðja orkupakkann og innleiða hann í íslenskan landsrétt að miðast við þá forsendu að grunnvirkjum yfir landamæri verði komið á fót hér á landi, en við þær aðstæður myndi reyna á umrætt valdframsal til ESA, einkum samkvæmt reglugerð nr. 713/2009.
Engin heimild er til þess að taka í lög ákvæði sem ekki fá staðist íslenska stjórnarskrá þó að svo standi á að ekki reyni á umrædd lagaákvæði í svipinn. Verður því að telja rökrétt og raunar óhjákvæmilegt að tekin sé afstaða til stjórnskipulegra álitaefna sem tengjast þriðja orkupakkanum nú þegar og það áður en Alþingi samþykkir þriðja orkupakkann.
Verður því að hafna því sjónarmiði að álitaefni tengd valdframsali til ESA skipti ekki máli á þessu stigi þar sem grunnvirki yfir landamæri eigi enn eftir að líta dagsins ljós hér á landi, og því sé Alþingi fært að samþykkja þriðja orkupakkann hvað svo sem líði stjórnskipulegum álitaefnum varðandi valdframsal til ESA.“
Mér finnst þetta sæmilega skýrt sjálfum og ég vona að þetta svari að hluta því sem hv. þingmaður beinir til mín. Ég mun hins vegar bæta um betur í seinna andsvari.