ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að veita mér tækifæri til að vekja athygli á hlutum sem ég gat ekki gert í gær þar sem ég tók ekki þátt í umræðunni um garðyrkjuna. En það er hárrétt, sem hv. þingmaður segir, að þar eru möguleikar eiginlega ótakmarkaðir.
Það er eitt mál sem ég hefði rætt í gær ef ég hefði tekið þátt í þessari umræðu. Það kom fram í umræðunni í gær að ungir menn hafi haslað sér völl í því að rækta wasabirót, sem er mjög dýr og verðmæt framleiðsla. En það kom líka fram, ekki alls fyrir löngu, herra forseti, að það er uppskerubrestur á vanillu. Hvað þýðir það? Það þýðir að verð á grammi af vanillu er jafnhátt og verð af grammi á silfri. Við höfum sem sagt möguleika á því, Íslendingar, að rækta silfur, eða jafngildi þess, með því að rækta vanillu, ef við hugsuðum djarft og hugsuðum fram á veginn og horfðum fram hjá því að það er fleira grænmeti en paprika, tómatar og gúrkur, með mikilli virðingu fyrir þeim framleiðsluvörum.
Ég vil einnig benda á, herra forseti, í þessu samhengi hve mikla áhættu menn eru að taka í að innleiða þennan orkupakka. Nýlega hafa ungir menn líka haslað sér völl í því að flytja út til Danmerkur íslenska gúrku sem selst þar við mjög háu verði. En nú ber svo við að þeir fá ekki nóg, framleiðslan er ekki nógu mikil, þannig að tækifærin eru á hverju strái. En um leið og menn eru að mæra það í einu orðinu þá eru menn að kippa grundvellinum undan þessari framleiðslu með því að hamra inn þennan svokallaða þriðja orkupakka.