149. löggjafarþing — 107. fundur,  21. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[14:53]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (andsvar):

Forseti. Það var einmitt þetta sem ég vildi fá fram og ég þakka hv. þingmanni sérstaklega vel fyrir þetta svar. Hann er náttúrlega löglærður maður. Þess vegna bið ég hv. þingmann að taka af öll tvímæli um að þessi sameiginlegi skilningur sem hefur verið ræddur hér, og við ræddum nokkuð í gær hvort hann hefði komið fram í símtali eða yfir samlokum og sódavatni eða kaffi og vínarbrauði einhvers staðar — mig langar til að þýfga hv. þingmann enn frekar um lagalegt gildi slíkrar yfirlýsingar þegar hún er gefin. Víst er hún gefin í góðum anda og af vinsemd en mig langar til að fá það alveg ótvírætt fram hjá hv. þingmanni hvort slík yfirlýsing hefur eitthvert lagalegt gildi og/eða lagastoð og hvort hægt sé að nota hana sem lögskýringu, t.d. ef til málaferla kæmi.