ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Þetta er það sem menn hafa kannski einna mest staldrað við, fyrir utan umræðuna um lagalega fyrirvarann, að tiltekin ákvæði eða tiltekinn hluti regluverksins í þriðja orkupakkanum komi ekki til framkvæmda. Þetta er það sem menn hafa legið yfir og velt fyrir sér. En ef regluverkið gildir og er innleitt þá gildir það auðvitað. Svo er margt í regluverkinu sem reynir ekki á fyrr en einhver atvik koma upp. Eigum við þá að taka þá áhættu? Eigum við að taka þá áhættu, með því að innleiða þetta, að upp komi einhver tilvik sem við sjáum alls ekki fyrir í dag? Þá mun reyna á þessar reglur með einhverjum hætti sem við gerum okkur ekki grein fyrir á þessari stundu, hv. þingmaður. En reglurnar hafa verið innleiddar og eru í gildi.