149. löggjafarþing — 107. fundur,  21. maí 2019.

seákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[15:04]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég veit ekki hvernig Norðmenn hugsa um raforkuauðlindir sínar, þ.e. fallvötnin. Ég veit hins vegar og get upplýst hv. þingmann um það að ég veit hvernig Íslendingar hafa litið á þá auðlind síðustu áratugi. Árið 1969 þegar Búrfellsvirkjun var tekin í notkun var uppsett afl hér innan lands aukið fimm- til sexfalt frá því sem áður var og gífurlegar fjárfestingar sem fóru þar fram. Ég myndi ætla að þau viðbrögð sem þetta mál hefur vakið meðal þjóðarinnar séu einmitt vegna þess að fólk hefur sterkar taugar til auðlinda, sterkar taugar til sameignar þjóðarinnar á þessum auðlindum og til þess að við getum notið góðs af þeirri auðlind um ókomna framtíð.