149. löggjafarþing — 107. fundur,  21. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[15:07]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég var næstum því búinn að hrósa hv. þm. Helga Hrafni Gunnarssyni áðan fyrir að hann væri málefnalegur, eða því sem næst. En mér verður ekki kápan úr því klæðinu að gera það eftir þessa síðustu ræðu. En ef hv. þingmanni liggur eitthvað á hjarta um dagskrármálið — um dagskrármálið — er um að gera fyrir hann að setja sig á mælendaskrá og taka umræðuna þar. Umræðu um það sem hv. þingmaður bar hér fram núna tökum við nefnilega ekki undir liðnum fundarstjórn forseta.

Auðvitað á maður í sjálfu sér ekki að standa upp og svara svona skítkasti sem kemur fram undir þessum lið en ég hvet hv. þingmanninn til að setja sig á mælendaskrá og taka efnislega þátt í þessari umræðu sem mun standa hér eitthvað fram eftir degi.