ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég ætlaði að nefna það fyrst og fremst að ég hef átt orðaskipti við hv. þingmann sem mér hefur þótt gagn af, satt að segja, sérstaklega orðaskipti hvað varðar stjórnarskrána og þær hugmyndir sem eru uppi núna og drögin sem liggja inni á samráðsgátt. Mér finnst við því ekki vera að fara hér fram viljandi með ósannindi, alls ekki.
Ég tel mig lesa mér til til að geta myndað mér skoðun á málinu. Ég veit að við erum alls ekki sammála en ég vil alls ekki sitja undir því að ég fari með einhver ósannindi eða gangi fram af óheilindum. Það er ekki þannig.