ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég gleðst yfir því að hv. þingmaður skuli hafa sett sig á mælendaskrá til að hægt sé að fara yfir það sem hann ræðir, að sá hópur sem hér er beiti vísvitandi ósannindum í umræðunni, sem er býsna alvarleg athugasemd. (Gripið fram í.)
Væntanlega gerir hv. þingmaður grein fyrir því hvar og hvernig og bendir á dæmi þar um og færir einhver rök fyrir máli sínu. Ef svo verður ekki er þetta náttúrlega bara ómerkilegt upphlaup.
Það er hins vegar mjög hættulegt þegar stjórnmálamenn lýsa sjálfum sér þannig að þeir séu handhafar sannleikans. (HHG: Það var ekki það sem ég gerði.) Við sjáum dæmi þess, m.a. frá Ameríku og víðar, Filippseyjum gæti ég merkt. Það er alltaf hættulegt þegar stjórnmálamenn halda að þeir séu umboðsmenn sannleikans en að aðrir gangi um ljúgandi. (Forseti hringir.) En þetta mál allt förum við yfir þar sem það á við, í umræðum um málið en ekki í fundarstjórn forseta, sem er ekki vettvangurinn til þess.