149. löggjafarþing — 107. fundur,  21. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[15:15]
Horfa

Forseti (Jón Þór Ólafsson):

Forseti vill benda á að þessi vettvangur, fundarstjórn forseta, hefur verið notaður í ýmsum tilgangi. Hvort þetta fellur undir hann getur forseti ekki beint dæmt um en sér ekkert, miðað við þau fordæmi sem liggja fyrir, sem bendir til þess að liðurinn hafi verið notaður á óeðlilegan eða óhefðbundinn hátt.