ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að gefa mér tækifæri til að fjalla um þessa umsögn sem hann kallar svo, reyndar er þetta (Gripið fram í.) — já, ég hef að sjálfsögðu lesið hana en reyndar er þetta bréf frá þeim tvímenningum til utanríkisráðherra (Gripið fram í.) og ég tek eftir því í þessu bréfi, og vek sérstaka athygli á því, að þeir ágætu höfundar tveir nota það bréf til að árétta það sem ég hef leyft mér að kalla hér í nokkrum ræðum og umfjöllun minni um þetta mál aðaltillögu þeirra í tilvitnaðri álitsgerð; þeir nota þetta bréf til að árétta þá tillögu. Sú tillaga felur í sér að leitað verði, á grundvelli ákvæða í EES sáttmálanum sjálfum, eftir sáttameðferð á vettvangi hinnar svokölluðu sameiginlegu EES-nefndar og þannig verði (Forseti hringir.) hagsmunir Íslendinga í þessu mikla máli tryggðir í bak og fyrir.