149. löggjafarþing — 107. fundur,  21. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[15:32]
Horfa

Ólafur Ísleifsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni fyrir andsvarið. Ég er alveg sammála honum um að það sætir miklum tíðindum að Alþýðusamband Íslands — almannasamtök sem hafa víðtæka skírskotun inn í íslenskt samfélag; innan vébanda þess eru hátt á annað hundrað þúsund manns og ég vísa til þeirrar löngu og merku sögu sem Alþýðusambandið á að baki í íslensku samfélagi — skuli taka svo afdráttarlausa afstöðu sem raun ber vitni í þessu þýðingarmikla þjóðfélagsmáli.

Hv. þingmaður sagði að 70% umsagna væru neikvæð. Ég geri út af fyrir sig ekkert allt of mikið með það, það er kannski hendingu háð að sumu leyti hverjir skila inn umsögn og ýmislegt af því tagi. Ég tek hins vegar eftir því að þeir sem hafa verið hér í hópi stuðningsmanna þessa orkupakka hafa haft uppi orð um það, eins og það væri einhver atkvæðagreiðsla meðal lögfræðinganna, að það væri bara eitt álit sem hefði umtalsverðar athugasemdir og þar sem miklum áhyggjum væri lýst eins og farið hefur verið yfir varðandi álit þeirra Friðriks Árna og Stefáns Más. Ég lít ekki þannig á að svona mál séu afgreidd með atkvæðagreiðslu. Ég tel einmitt að það sé höfuðskylda alþingismanna, sem hafa undirritað eið að stjórnarskránni, að þeim (Forseti hringir.) beri að sjálfsögðu ekki síst að líta til þeirra sjónarmiða sem fela í sér að sem mest varkárni sé sýnd og að gætilega sé stigið til jarðar. (Forseti hringir.) Það er einmitt það sem er gert í áliti Friðriks Árna (Forseti hringir.) og Stefáns Más og þess vegna legg ég mjög mikið upp úr því áliti.

(Forseti (JÞÓ): Forseti minnir þingmenn á að virða ræðutíma.)