149. löggjafarþing — 107. fundur,  21. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[15:50]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni afar gott andsvar. Það er einmitt góð og gild spurning í þessari umræðu: Hvað hefði Jón Sigurðsson gert? Það er efni í stóra og mikla grein sem ég hvet hv. þingmann til að íhuga hvort ekki sé rétt að hann skrifi. Hann er afar ritfær, þekktur fyrir góð tök á íslenskri tungu og þekkir söguna vel þannig að þetta er mjög áhugaverður punktur sem ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir að koma hér með.

Það er mitt mat að hér sé verið að halda fram ákveðnum hræðsluáróðri um það að EES-samningurinn sé í uppnámi. Ég spyr í fyrsta lagi: Hvaðan hafa stjórnvöld þær upplýsingar? Hvaðan hafa þau þær? Þau verða þá að færa einhver rök fyrir því að halda þessu fram þegar í samningi tveggja aðila sem hafa sama rétt til að leita lausna á deilumálum og sá réttur hefur aldrei verið nýttur í 25 ár. Þá spyr maður sjálfan sig: Hvernig má það vera að svona samningur fari í uppnám þegar menn geta farið þessa lögformlegu leið?

Þetta er að mínu mati, herra forseti, bara svona leið til að keyra málið áfram. Þarna eru ákveðnir hagsmunir á bak við. Við þekkjum það, það eru fyrirtæki eins og Landsvirkjun sem leggja ríka áherslu á að þetta fari í gegn. Ég held að stjórnvöld séu allt of mikið undir áhrifum þessara aðila sem hafa hag af því að þessi tilskipun verði að veruleika og óttast einhverra hluta vegna að ef við fáum þessa varanlegu undanþágu sé svolítið búið að kippa stoðunum undan framtíðaráformum þessara fyrirtækja þegar kemur að orkusölu inn í framtíðina.