149. löggjafarþing — 107. fundur,  21. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[15:53]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Við erum að ræða um orkupakkann. Ég var spurður, eftir mína síðustu ræðu í gærkvöldi, hvort ég væri á móti EES-samningnum og því að vera í EES. Það er ég alls ekki. EES-samningurinn hefur gert okkur mjög gott og það er frábært að vera í þeim samningi. En það sem mér líkar ekki er sú aðferð og sú afstaða sem við höfum tekið gagnvart EES-málum. Fjöldinn er alveg ótrúlega mikill og kannski er það undarlegast í því máli hvenær þingið fær niðurstöðurnar til afgreiðslu. Það er yfirleitt þegar búið er að semja og það er svolítið furðulegt vegna þess að ef rétt væri farið að í svona málum ætti, um leið og EES-samningurinn er byrjaður, t.d. í sambandi við orkupakkann, og verið er að semja um þau málefni, viðkomandi mál strax að koma til utanríkismálanefndar þannig að sú nefnd gæti fylgst með hvað væri í gangi, tekið afstöðu og sagt sitt í málinu. Það er alveg ótækt að þingmenn komi ekki að málunum fyrr en á lokastigi þegar þau virðast vera komin á það stig að engu sé hægt að breyta.

Annað sem við erum að glíma við í þessu máli og mér hugnast ekki er að það er eiginlega skýrt að við erum að tala um að orkumál á Íslandi tilheyri innri markaði Evrópu. Því til áréttingar ætla ég, með leyfi forseta, að lesa hér úr 4. gr. um innri markað raforku:

„Reglur um viðskipti með orku hafa verið hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið (EES-samningsins) frá gildistöku hans árið 1994. Orka er skilgreind sem vara og fellur því undir frjálsa vöruflutninga, sem er hluti fjórþætta frelsisins, en bæði innri markaður Evrópusambandsins (ESB) og Evrópska efnahagssvæðið byggja á því. Almennt er því litið á orku eins og hverja aðra vöru sem samkeppnislögmál gilda um. Í því sambandi má vísa til umfjöllunar í greinargerð með frumvarpi til laga sem varð að raforkulögum nr. 65/2003.“

Þarna er hreinlega verið að segja að raforkan sé eins og hver önnur vara. Við framleiðum vöru eins og fisk og flytjum hana á innri markaðinn og þá er hann kominn, með okkar samþykki, á þennan innri markað og er flokkaður sem hver önnur vara. En við höfum ekki flutt raforku á innri markað Evrópu frekar en t.d. gas. Við fáum undanþágur frá gasinu og þá eigum við líka að fá undanþágu frá rafmagninu vegna þess að inn á innri markaðinn höfum við ekkert að gera. Ef við erum einu sinni búin að samþykkja að raforkan sé komin inn á innri markað Evrópu held ég að við eigum ekki séns á að ná henni þaðan út aftur. Hún verður þar og þá er spurningin: Hver ræður yfir þessum markaði? Það er ESA, það fer ekkert á milli mála, þeir ráða yfir þessum markaði þannig að við erum búin að missa völdin um leið og við samþykkjum þetta. Ég held að það skipti engu máli hvort við setjum einn eða hundrað fyrirvara, þeir gilda ekki þegar við erum búin að negla okkur þarna inn á þennan innri markað. Það er talað sérstaklega um að rafmagn sé bara eins og hver önnur vara á markaði. Hvað segir það okkur? Það segir okkur einfaldlega að við ráðum ekki verðinu. Og að halda öðru fram en að raforkuverð á Íslandi muni hækka — það gerir það. Það gerði það við fyrsta og annan pakka og það mun gera það enn þá meira við þennan þriðja, ég tala nú ekki um fjórða eða fimmta. Við verðum líka að átta okkur á að þegar við erum komin á innri markaðinn — ef við lesum áfram í þessari 4. gr., með leyfi forseta, segir þar orðrétt:

„Þótt Ísland sé ekki tengt raforkumarkaði annarra EES-ríkja, hefur það ekki sjálfkrafa í för með sér að reglur EES-samningsins um viðskipti með raforku eigi ekki við hér á landi.“ — Þetta er bara skýrt. „Einangruð svæði sem starfrækja raforkumarkað eiga iðulega viðskipti með vöruna raforku sem lúta þarf reglum innri markaðarins. Dæmi eru um að reglur eigi einungis við um tengd svæði eða millilandatengingar og eru þá einangruð svæði undanskilin í gildissviðsákvæðum eða undanþáguákvæðum viðkomandi gerða.“

Þarna áttum við að fá undanþágu, það er bara skýrt, og þá spyr ég: Þeir sem voru að semja fyrir okkur, hvers vegna í ósköpunum stóðu þeir ekki fast á þessu? Þar af leiðandi segir það sig sjálft að við eigum að senda þennan pakka aftur heim til ESB og fá nýjan samning. Það er alveg skýrt að nýr samningur væri sjálfsagður hlutur. Ég get ekki séð að ríki sem vill eiga samskipti vilji ekki semja um eitthvað sem okkur er illa við að fá. Þá skulum við bara benda á að í MMR-könnuninni sem kom um orkupakkann kemur fram að helmingur landsmanna er andvígur þriðja orkupakkanum og 31% fylgjandi. Stuðningsfólk ríkisstjórnarinnar er lítt hrifið af honum og tæpur helmingur þess er hlynntur því að hann verði tekinn upp hér á landi. Hvað segir þetta okkur?

Síðan er fjórðungur, 27%, þeirra sem styðja ríkisstjórnina fylgjandi. Rétt einn fjórði af þeim sem styðja hana eru fylgjandi. Þá hlýtur þessi ríkisstjórn líka bara að fagna því að stuðningsmenn hennar fái það fram sem þeir vilja. Ég segi fyrir mitt leyti að ég er alveg sammála því stuðningsfólki Flokks fólksins sem segist vera andvígt pakkanum vegna þess að það eru 98%, þar af eru 91% mjög andvíg. Þetta á ekki við um Pírata, Samfylkinguna og Viðreisn. Þar eru hlutirnir þannig að jákvæðir eru um 60% og það er ósköp eðlilegt af því að þessir aðilar vilja fara í Evrópusambandið og eru hlynntir því að Evrópusambandið yfirtaki okkur. Við verðum að átta okkur á því. Ég tel að Evrópusambandið hafi verið stofnað í upphafi til að auðvelda viðskipti og ég held að það hafi verið grunnurinn að því á sínum tíma að það væri ekkert að skipta sér af innstu málum þeirra ríkja sem þar eru. En núna eru þeir komnir inn í alla hluti og vilja skýlaus yfirráð yfir öllum. Í sjálfu sér erum við að afsala okkur völdum, ef við færum í ESB, á okkar eigin auðlindum, eiginlega á okkar eigin þjóðþingi, við erum bara smápeð í þeim stóra pakka ef við færum inn í Evrópusambandið og ég held að rödd okkar myndi ekki heyrast neitt þar. Þar af leiðandi yrði okkur ekkert ágengt með það að fá hlutina í gegn.

Meðan við erum í EES og eigum samningsrétt gagnvart Evrópusambandinu eigum við að nýta okkur það og samkvæmt öllu er samningur á jafnréttisgrundvelli þannig að við eigum rétt á því að semja á jafnréttisgrundvelli. Þess vegna segi ég alveg skýrt: Þarna er verið að innlima okkur í innri markað Evrópu með rafmagn sem ég er ekki tilbúinn til að kyngja. Ég segi fyrir mitt leyti, eins og maður heyrir talað um, það er alltaf verið að búa til ný orðatiltæki: Ég er með orkuviskubit yfir þessum pakka.