149. löggjafarþing — 107. fundur,  21. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[16:18]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Hann kom þarna inn á mjög áhugaverðan punkt sem ég held að hafi ekki verið nefndur í tengslum við þessa umræðu fyrr, þá kröfu sem Evrópusambandið gerði um að skipta um ljósaperur. Það hljómar kannski sem einfaldur hlutur en þetta er alveg rétt hjá hv. þingmanni, þetta hefur kostað almenning alveg ótrúlegar upphæðir. Þegar gamla ljósaperan kostaði kannski 200 kr. voru þessar nýju perur — þær voru það a.m.k. en hafa reyndar aðeins lækkað — á 1.500–2.000 kr. Það sér hver maður að þetta voru gríðarlegar hækkanir. Þær áttu að fela í sér orkusparnað sem þær kannski vissulega gera en á móti kemur að orkan á Íslandi er margfalt ódýrari en erlendis, í Evrópu, þannig að áhrifin hvað okkur varðar voru ekki eins mikil og í Evrópu en hins vegar er sá kostnaður sem fylgir því að þurfa að skipta um peru, og nú eru þessar gömlu perur ekki fáanlegar, verulegur og fyrir fólk sem hefur lítið á milli handanna skiptir þetta máli. Þetta er dæmi um það, herra forseti, að við gleypum við öllu sem kemur frá Evrópusambandinu hvað þetta varðar án þess að nokkur almennileg umræða fari fram um það, án þess að gerð sé einhver athugun á hagkvæmni þess og hvaða áhrif þetta kemur til með að hafa fyrir okkur o.s.frv. Þetta eru allt hlutir sem þarf að rannsaka og fara ofan í kjölinn á.

Ég nefndi garðyrkjuna í ræðu minni fyrr í dag. Auðvitað þarf að gera rannsóknir og athuganir á því hvaða áhrif þessi innleiðing kemur til með að hafa fyrir þá grein og fleiri greinar. Þetta er allt undirbúningsvinna sem á að vinna áður en við erum komin á það stig að fara að innleiða þessa tilskipun. En það hefur ekki verið gert.