149. löggjafarþing — 107. fundur,  21. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[16:22]
Horfa

Forseti (Jón Þór Ólafsson):

Forseti mun óska eftir því við nefndasvið Alþingis að þeir ferlar sem EES-mál fara í gegnum Alþingi séu sendir á þingmenn. Þingmenn hafa oft fengið þetta hjá nefndum en forseti mun óska eftir því að það sé bara sent á alla þingmenn þannig að við höfum nákvæmlega ferlana fyrir okkur í umræðu sem þessari.