ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir ræðuna. Það er akkúrat þetta. Þetta er svolítið áhugavert því að upp á enska tungu er stundum sagt: „The devil is in the detail“ eða að djöfullinn liggi í smáatriðunum. Það er akkúrat þetta, opið útboð. Hvað þýðir það? Að við séum skyldug til að fara í opið útboð á virkjunarkostum sem eru í opinberri eigu, þ.e. í eigu þjóðarinnar? Þýðir það að það geti allir komið að útboðinu? Já, mjög líklega. En þýðir það að hið opinbera geti ákveðið að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum?
Mig langar til að biðja hv. þingmann um að velta því aðeins fyrir sér. Felur það í sér að við höfum raunverulega forræði á virkjunarkostum? Hér hefur komið fram að menn hafi áhyggjur af þessu. Við eigum jú auðlindina en höfum við forræði yfir henni? Höfum við forræði eftir að þetta er allt um garð gengið?
Ég velti fyrir mér hvort orðalag í löggjöf Evrópusambandsins og þessum samningum sem við störfum eftir, hvort það sé tilviljun ein eða kylfa ráði kasti hvernig stafir detta á blað. Ég hef ekki trú á því. Þetta snýst allt um markmið og stefnu Evrópusambandsins. Ég ætla að koma aðeins inn á þetta í ræðu minni á eftir, einmitt: Og hvað svo? En að svo komnu máli langar mig til að fá vangaveltur þingmannsins um það hvort í þessu opna orðalagi geti falist eitthvað meira en virðist við fyrstu sýn.