149. löggjafarþing — 107. fundur,  21. maí 2019.

ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar, nr. 93/2017, um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn.

777. mál
[17:06]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Herra forseti. Eftir því sem þessari umræðu vindur fram, þó að meginstefin séu út af fyrir sig þau sömu, koma í sífellu upp nýir fletir svona eins og við séum með marghliða tening. Menn sem hafa mikla reynslu hafa tjáð sig um þessa þróun sem orðið hefur á málinu.

Það er mjög eftirtektarvert að í Morgunblaðinu í dag fer ágætur maður, sem hefur manna mest reynslu af pólitískri þróun á Íslandi síðustu áratugina, Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri, yfir það sem hefur verið að gerast og blasir við af hendi þingmanna stjórnarliðsins. Við höfum verið að tala um það nokkuð mikið, þingmenn Miðflokksins, að við könnumst í sjálfu sér ekki við þetta fólk og yfirlýsingar þeirra og flokkanna frá því áður og fyrr.

Styrmir segir, með leyfi forseta:

„Það er forvitnilegt að fylgjast með þingmönnum stjórnarflokkanna þessa dagana á meðan þeir bíða eftir því að rétta upp hendina með orkupakka 3, margir hverjir gegn eigin samvisku …“

Og áfram segir:

„Þingmenn Framsóknarflokksins þegja flestir enda gera þeir sér áreiðanlega ljóst að þeir kunna að vera að rétta upp hendina með því að þurrka flokk sinn út. Þingmenn VG virðast lifa í einhvers konar tómarúmi, sem bendir til að þeir viti ekki lengur hverjir þeir eru eða hvaðan þeir koma.“

Og að lokum segir Styrmir:

„Þingmenn Sjálfstæðisflokksins eru kokhraustari. En háttsemi þeirra bendir til að þeir átti sig ekki á því að það kemur dagur eftir þennan dag. Þeir virðast a.m.k. ekki hafa nokkurn áhuga á því að hljóta endurnýjað umboð frá flokksfélögum og kjósendum.

Það er rétt að þeir viti af því að þótt þeir hafi atkvæðin í sínum höndum á Alþingi eru það aðrir, sem hafa þau utan þess …“

Þetta, herra forseti, eru býsna drjúg orð. Þegar menn af þessu kalíberi, ef mér leyfist að nota það orð, herra forseti, taka til máls um jafnstórt mál og hér er undir þá hljóta menn að sperra eyrun, hefði maður haldið. En það er ekki að sjá á þingmönnum stjórnarliðsins, nánast enginn þeirra hefur tekið þátt í þessari umræðu að nokkru marki. Menn hafa skotist hér inn með ólundarleg andsvör við og við en að öðru leyti er nokkurs konar starfsdagur þingsins hjá þessum ágætu hv. þingmönnum. Þeir nota örugglega tímann til að semja greinar og senda tölvupósta á meðan á þessari umræðu stendur hér í þingsal.

Fjarvera stjórnarþingmanna frá þessari umræðu, og það er það sem Styrmir er kannski að taka undir og færa fram, bendir hins vegar til þess að menn geri sér ekki grein fyrir vitjunartíma sínum. Því hefur verið haldið fram, herra forseti, að minni hluti þingheims sé búinn að taka þingsalinn yfir. Menn skyldu átta sig á því að að baki þessum minni hluta þingheims, í þessu máli, stendur meiri hluti kjósenda á Íslandi sem vill ekki sjá orkupakka þrjú. Við höfum fundið það síðustu dægrin að það er fjöldi fólks að fylgjast með útsendingum héðan af Alþingi dag sem nótt. Við höfum fengið hvatningarorð hvaðanæva að, um miðja nótt, sem bendir til þess að áhugi kjósenda, almennings í landinu, á þessu máli sé miklu meiri en menn gera sér grein fyrir.